City GO i-size Car Seat

• Prófaður og viðurkenndur samkvæmt R 129 , i-size (0-18 mánuðir) upp í 87 cm.
• Grunneining sem hægt er að hallastilla á sjö mismunandi vegu og vex með barninu. Býður upp á gott fótarými og mikil þægindi fyrir börn upp að 18 mánaða aldri.
• Einfalt er að festa stólinn því hann er með Isofix-grunneiningu sem dregur úr hættu á rangri uppsetningu.
• Hæð beltisins stillist sjálfkrafa þegar hæð höfuðstoðarinnar er breytt og þannig er tryggt að barnið sé alltaf vel spennt í sætinu.
• Fimm punkta beltið í bílstólnum er stillt að framanverðu sem auðveldar þér að setja barnið í stólinn og taka það úr honum.
• Innlegg fyrir kornabörn sem hægt er að taka af og stuðningsdýnur úr „memory foam“ á hliðum höfuðstoðarinnar draga betur úr höggum og veita meiri stuðning.
• Með millistykki sem selt er sér er hægt að nota stólinn í „travel system“ með flestum gerðum kerra frá Baby Joggers.